Þjóðsögur
Viltu vita meira? |
Í skólanum hjá Orra og Ösp er búið að vera vinna með þjóðsögur undanfarna mánuði. Ein saga er tekin fyrir í hverjum mánuði þar sem hún er lesin og unnið með hana í framhaldinu af því. Næsta þjóðsaga sem á að vinna er um Þórkötlu og Járngerði. Byggðakjarnarnir í bænum heita eftir þeim stöllum og því eru krakkarnir svolítið spennt að kynna sér söguna á bak við nafngiftirnar.
Krökkunum er búið að finnast skemmtilegt að vinna með þjóðsögurnar og fræðast um byggðina sína í leiðinni. Þau eru til dæmis búin að heyra um söguna á bak við örnefnið Grindavík, um Þjófagjána og silfurfestina í Festarfjalli. |
Viltu vita meira?Fleiri örnefnasögur sem tengjast Grindavík
Upptaka frá Festarfjalli og Ægissandi
|