Námsvefur um Grindavík fyrir miðstig grunnskóla
Orri og Ösp eru tíu ára og hafa alltaf búið í Grindavík. Þau eru stolt af bænum sínum og eru sammála um að hann bjóði upp á spennandi ævintýri hvert sem litið er. Orri og Ösp hafa æft körfubolta frá því þau voru fimm ára en bættu fótboltaiðkun nýlega við. Þegar þau eru ekki á íþróttaæfingum eða í skólanum þá eru þau dugleg að fara á vit ævintýra úti í náttúrunni. Þau hafa dálæti á að velta fyrir sér liðnum tíma og hvaða sögu hver staður hefur að geyma. Ef þú smellir á krækjurnar hér að ofan þá getur þú tekið þátt í ævintýrum þeirra þar sem þau skoða menningu í sögu og heimahögum. |
2014 Matthildur Þorvaldsdóttir