Verslun
Viltu vita meira?Blómakot er athyglisverður staður en þar má finna ýmsa fallega muni
|
Á heitum sumardögum fara Orri og Ösp gjarnan í Skeifuna og kaupa sér ís. Skeifan er söluturn í verslunarmiðstöð bæjarins. Krakkarnir segja nú stundum í gríni að verslunarmiðstöðin sé þeirra "moll".
"Vissir þú Ösp að í eldgamla daga fyrir meira en hundrað árum þá var ekki verslun í Grindavík" sagði Orri og sleikti ísinn sinn. "Nei það vissi ég ekki" sagði Ösp. "Já þetta var ótrúlegt ástand, þá þurfti fólk að ganga til Keflavíkur sem er sko meira en tuttugu kílómetrar til að versla" bætti Orri við. Ösp varð svo hissa að hún gleymdi að sleikja ísinn sinn í smástund og starði bara á Orra. "Ertu að grínast" sagði hún loks. "Nei þetta er alveg satt, fólk þurfti að bera á bakinu aftur til Grindavíkur allt sem það keypti" svaraði Orri henni. "Þetta tók heilan dag" bætti hann svo við. "Ja hérna, ég held að þetta hafi nú verið það rosalegasta sem þú hefur sagt mér" sagði Ösp og heilsaði vinkonu sinni sem gekk framhjá þeim. Afi hafði einu sinni sagt Orra frá fyrstu versluninni sem var stofnuð í Grindavík en hún nefndist Einarsbúð. Stærðin á henni var um það bil eins og venjuleg stássstofa á heimilum. Í miðri búðinni var búðarborð sem kaupmaðurinn stóð á bak við til að afhenda vörurnar sem stóðu í hillum fyrir aftan hann. Orri hafði velt því fyrir sér hvort afgreiðslan hefði ekki gengið hægt. En þá hafði afi bent honum á að íbúar byggðarlagsins voru talsvert færri en þeir eru núna. |
Viltu vita meira?Í gamla daga var meira um sjálfsþurftarbúskap heldur en í nútímanum. Þá ræktaði fólk allt sem jörðin leyfði þeim og lifði á afurðunum
|