.... að fjallstindi
Viltu vita meira?
Hvað eru sumarsólstöður?
Gamburmosi er algengasta mosategundin í landi Grindavíkur
Ingibjargarstígur er nefndur eftir Ingibjörgu Jónsdóttur stofnanda Skógræktarfélags Grindavíkur
|
Ösp var að kyngja síðasta munnbitanum af kvöldmatnum þegar hún heyrði bankað á útidyrnar. Hún stökk spennt á fætur og rauk til dyra. "Hæ ertu tilbúin í sólstöðugönguna" sagði Orri sem stóð glaðlegur fyrir utan dyrnar ásamt afa sínum. "Já, ég á bara eftir að skella mér í gönguskóna og finna til sunddótið mitt" svaraði Ösp honum.
Afi hans Orra sem var mikil útivistargarpur hafði aldrei misst af hinni árlegu göngu á Þorbjarnarfell. Fyrir þremur árum hafði hann komið Orra og Ösp á bragðið þegar hann lokkaði þau með sér í gönguna. Eftir það var ekki aftur snúið og síðan þá er dagur sólstöðugöngunnar frátekinn. Þegar Ösp var tilbúin gengu þremenningarnir af stað í átt að sundlauginni þar sem gangan átti að hefjast. Hjá sundlauginni beið stór hópur fólks tilbúinn til þess að arka á Þorbjarnarfell. Þegar upp á fjallstindinn var komið blasti við stórkostlegt útsýni til allra átta. Í suður mátti sjá strandlengjuna sem lá við Atlantshafið. Þar bar við augu Staður í vestri að Hópsnesinu í austri með vitanum sem leitt hafði sjómenn heim í gegnum tíðina. Þremenningarnir gengu upp fjallið og tylltu sér í brekkunni fyrir framan varðeldinn. Þar var göngufólkið búið að tylla sér, horfði á sólsetrið og beið eftir að fjöldasöngur hæfist. Orra og Ösp fannst þetta einn af hápunktum göngunnar og tóku vel undir í söngnum. Nokkrir fýlar fylgdust forvitnir með og létu vel í sér heyra í takt við fjöldasönginn. Þegar göngugestir voru búnir að taka vel undir í söng með trúbadornum var gengið af stað á ný og farið niður fjallið að Ingibjargarstíg. "Veistu hvað þessi blóm heita Orri" sagði Ösp og benti á fjólublá lítil blóm neðst í fjallinu. Ösp hafði dálæti á blómum og þekkti ótrúlegustu tegundir út í villtri náttúrunni. "Heyrðu heitir þetta ekki kattartunga" sagði Orri. "Nei svaraði Ösp ánægð með sig, þetta er blóðberg. Þetta blóm er hægt að nota í matargerð og er mjög gómsætt á bragðið". Eftir Ingibjargarstíg lá leiðin að Bláa lóninu. Krökkunum fannst þessi hluti af göngunni alltaf jafn ævintýralegur þar sem gengið var í gegnum hraunið með öllum sínum kynjamyndum. Hraunið var þakið mosaþembu þannig að hraunið varð gult, grænt og grátt á litinn í sumarkvöldinu. "Það er eins gott að það komi ekki jarðskjálfti á meðan við göngum hér í gegn" sagði Ösp allt í einu. "Ég held að ég myndi hreinlega ekki vera til í það" bætti hún svo við. "Já það er eins gott" sagði Orri. "Ég fann nú fyrir jarðskjálfta heima um daginn og það var sko ekki það skemmtilegasta skal ég segja þér". Orri greip í höndina á Ösp og þau héldu áfram göngunni. Þegar gönguhópurinn nálgaðist Bláa lónið var ekki laust við að Orri og Ösp væru orðin dálítið lúin enda klukkan að verða ellefu. Þau hlökkuðu til að leggjast í heitt, blátt vatnið, láta þreytuna líða úr kroppnum og maka á sig kísilleir. Ekki skemmdi fyrir að veðrið var dásamlegt og líflegur trúbadorinn á vatnsbakkanum setti skemmtilegan svip á fallegt sólarlagið. |
Viltu vita meira?Veistu að ef þú gengur hringinn í kringum Þorbjarnarfell þá ertu búin að ganga fimm kílómetra
Nútímahraun eru þau hraun sem runnið hafa frá lokum ísaldar
|