Saga byggðar
Viltu vita meira?Upphaf byggðar í Grindavík
|
Orri og Ösp höfðu ákveðið að skella sér á kaffihúsið Bryggjuna sem stóð við höfnina og fá sér heitt súkkulaði. Staðurinn var stútfullur af myndum og minjum frá liðinni tíð og krakkarnir elskuðu að sitja og sötra súkkulaði með rjóma og drekka í sig söguna af veggjunum. Þau gátu eiginlega ekki gert upp á milli hvort þeim fyndist skiltið með aflakóngunum merkilegast eða skiltið með ljóðinu "Grindvíkingur". Þau höfðu oft heyrt lagið sungið, enda vinsælt bæjarlag, en þau áttu eftir að hitta einhvern af þessum merkilegu aflakóngum bæjarins.
Krökkunum fannst enn skemmtilegra þegar afi hans Orra kom með á kaffihúsið og sagði þeim sögur um Grindavík frá gamalli tíð og þróun byggðarinnar. Hann hafði einu sinni sagt þeim söguna um hvernig upphafið að byggð í Grindavík var talið vera samkvæmt Landnámabók. En þar stendur að byggðarkjarnarnir Járngerðarstaðahverfi, Þórkötlustaðahverfi og Staðarhverfi, sem enn eru til í nútímanum, séu líklega frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar eða frá árinu 934. Orri og Ösp gátu setið tímunum saman með afa hans Orra og velt fyrir sér sögu byggðarlagsins. Þau þyrsti í fróðleik og voru dugleg að rekja garnirnar úr honum. Enda hafði afi Orra sagt stoltur við hann einn daginn "sjaldan fellur eplið langt frá eikinni" "hvað sem hann átti nú við með því". Á heimleið frá kaffihúsinu sáu krakkarnir álengdar hvar sjálfboðaliðar Slysavarnarfélagsins voru að störfum við að setja upp sölubása við höfnina. "Ég er ótrúlega spennt og get eiginlega ekki beðið eftir Sjóaranum síkáta" sagði Ösp. "Ég líka" sagði Orri. "Skemmtilegasta bæjarhátíð sem ég þekki, ekki spurning" bætti hann við. Á síðustu metrunum að húsi Aspar sáu krakkarnir Festi, gamla góða félagsheimili Grindavíkur eins og afi Orra nefndi það. Þau voru búin að heyra rómantískar sögur frá þessum merka stað og fannst það miður að þau myndu ekki kynnast húsinu í sinni gömlu mynd. |
Viltu vita meira?
Á 17. júni velja Grindvíkingar sér Fjallkonu
Grindavík fékk kaupstaðaréttindi árið 1974
|