Sjávarútvegur
Viltu vita meira?Grindavíkurhöfn innsiglingin
|
"Ertu til í að koma með mér niður að bryggju á dorga?" sagði Ösp við Orra þegar þau lágu í grasinu við hliðina á Voninni minnisvarða sem reistur var til heiðurs fjölskyldum sjómanna. "Já hvort ég er" sagði Orri og stökk á fætur. "Við skulum bruna heim og ná í stangirnar".
Við höfnina var líf og fjör. Sílamáfar og svartbakar flugu gargandi yfir bátunum þar sem sjómennirnir voru að landa aflanum. Fuglarnir voru greinilega til í máltíð og krökkunum fannst spennandi að fylgjast með hvort þeim tækist að næla sér í bita. Orra fannst þeir hætta sér frekar nálægt fiskikörunum en þrátt fyrir glæfraskap tókst máfunum ekki ætlunarverk sitt. "Hugsaðu þér Ösp, fyrst þegar sjómennirnir voru að sigla að Grindavík með aflann sinn þá voru þeir í litlum árabátum og það var hvorki búið að hlaða hafnargarðinn sem nú er kominn, né búið að byggja hafnirnar" sagði Orri íbygginn á svip. "Þeir sigldu fyrir opnu hafi við mjög svo grýtta strönd". Það hefur verið ævintýramennska í þá daga að koma aflanum að landi" sagði Ösp. "Já það segir þú satt. Þá voru ekki nútíma staðsetningartæki eða fiskileitartæki komin til sögunnar. Það var heldur enginn vélbúnaður eða hlífðarfatnaður til í þá daga" sagði Orri spekingslega. Ösp gretti sig "Vá, ótrúlegt, ekki hefði ég viljað vera sjómaður þá". "Eigum við að rölta í Kvikuna og skoða sögu saltfisksins, það er svo skemmtilegt safn? Svo gæti afi líka verið að vinna" sagði Orri. "Ég er til" svaraði Ösp. Á leiðinni í Kvikuna komu þau auga á nokkur skip við höfnina. Afi hans Orra hafði sagt þeim um daginn að mörg skip bæru sömu nöfn og nokkrir forfeður byggðarlagsins. Þetta voru t.d. skip eins og Hrungnir og Gnúpur. Orra fannst það snilldar hugmynd að fólk í nútímanum nefndi skipin sín eftir landnámsmönnum. Eftir að hafa gengið með afa Orra í gegnum Saltfisksetrið og hlustað á fróðlegar frásagnir af vinnuaðferðum og aðstöðu sjávarútvegs á fyrri tímum, þá gengu þau heim á leið. Ösp fannst frásögn afa af verstöðinni í Grindavík eftirminnileg og líka hvernig mennirnir á skipunum fóru að því að finna landið á ný. Sundvörður eru dæmi um kennileiti sem gagnaðist sjómönnum áður en vitinn á Hópsnesinu var reistur. |
Viltu vita meira?
|