Auðlindir
Viltu vita meira?
|
Að hjóla Bláa lóns hringinn er í uppáhaldi hjá Orra og Ösp en hann er rúmir fimmtán kílómetrar að lengd. Skemmtilegast er að fara hann í góðu veðri og taka með sér nesti til að gæða sér á á leiðinni.
Eitt laugardags eftirmiðdegi í ágúst ákváðu krakkarnir ásamt afa hans Orra að skella sér hringinn. Þau brunuðu í norðurátt eftir nýja göngustígnum meðfram hitaveiturörunum. Þegar þau komu í Svartsengi blasti við þeim Hitaveita Suðurnesja. Þá datt afa í hug að kíkja á vin sinn sem var að vinna þar. Ösp sem hafði aldrei komið þarna fannst þetta ótrúlega spennandi hugmynd. Henni leið eins og hún væri stödd í ævintýramynd með allan þessa gufu sem liðaðist um hraunið. Þegar afi var búinn að þiggja kaffibolla hjá vini sínum héldu þau af stað. Þau voru ánægð með fræðsluna um hitann og orkuna úr jörðinni sem vinur afa hafði veitt þeim. Næst lá leiðin að metanól verksmiðjunni sem var við hliðina á hitaveitunni í Svartsengi. Krakkarnir höfðu heyrt af því að þar væri verið að framleiða fljótandi náttúruvænan orkugjafa fyrir bíla og draga úr gróðurhúsaáhrifum í leiðinni. Það fannst þeim snjöll hugmynd. Áfram héldu þau og beygðu inn á Bláa lóns veginn. Krökkunum fannst skemmtilegast að hjóla þann hluta af leiðinni vegna bláu stöðuvatnanna sem höfðu myndast í hrauninu á stöku stað meðfram veginum. Afi hafði útskýrt fyrir þeim gang náttúrunnar og hvernig stæði á þessu bláa vatni sem væri fullt af kísli í hrauninu. Hann sagði þeim að starfsmaður Hitaveitunnar hefði uppgvötað fyrir slysni að vatnið hefði græðandi áhrif á húðina. |
Viltu vita meira? |