Menning og listir
Viltu vita meira?
Grindavík er alltaf bærinn minn
Árleg menningarvika
|
"Orri manstu þegar við sáum leikritið Með horn á höfði, hvað það var ótrúlega skemmtilegt?". "Já svo sannarlega, ég væri sko til í að sjá það aftur, það var svo mikill fróðleikur um byggðasöguna í því" svaraði Orri um leið og þau gengu að Kvennó.
"En segðu mér eitt Orri, veistu hvaða maður þetta er á styttunni við Kvennó?". "Heyrðu, afi sagði mér að þetta væri Sigvaldi Kaldalóns, eitthvert frægt tónskáld sem var til í gamla daga". "Hann var víst læknir hérna í Grindavík". Ösp horfði á vin sinn aðdáunaraugum, hún gat alltaf stólað á að hann vissi um svona hluti. Krakkarnir voru á leiðinni í Kvennó á tónleika á vegum tónlistarskólans. Ösp sem var að læra á trommur átti að spila tvö lög með hljómsveit hússins. Orra fannst hún ótrúelga snjöll að hafa valið trommur til að læra á og var spenntur að hlusta á vinkonu sína. "Orri viltu koma með mér á sunnudaginn á Bryggjuna að hlusta á Guðberg Bergsson lesa úr nýju bókinni sinni?" spurði Ösp þegar þau voru á heimleið. "Það verða fleiri Grindvíkingar með upplestur og söng, mér skilst að þetta heiti Opið hús" bætti Ösp við. "Ég er til í það" svaraði Orri. "Mér finnst þá tilvalið að koma við í Salthúsinu á undan og fá okkur saltfiskréttinn að hætti hússins, hvað finnst þér um það?" bætti Orri við. "Umm, til er ég, hann er svo ljúffengur" svaraði Ösp. "Heyrðu, en á morgun þá kemur þú með mér á körfuboltaleikinn hjá UMFG í meistaraflokki karla, þeir gætu orðið Íslandsmeistarar þriðja árið í röð?" sagði Orri. "Já minn kæri vinur það skal ég gera" svaraði Ösp og brosti. |
Viltu vita meira?Grindvískir listamenn
Bergur Ingólfsson Víðir Guðmundsson Kalli Bjarni Idol Helga Kristjánsdóttir Halldór Lárusson Stuðningslag Grindvíkinga
|